kolla stúdent

Posted in ljósmyndun on June 2nd, 2010 by hilda – 1 Comment

hún kolbrún björk útskrifaðist frá kvennaskólanum síðastliðinn föstudag og mæltum við okkur mót í hljómskálagarðinum í frábæru veðri á undan athöfninni.

ferming

Posted in ljósmyndun on May 17th, 2010 by hilda – 1 Comment

hann ari frændi minn fermist um næstu helgi og var ákveðið að taka myndir í hellisgerði í nálægð við heimili hans. ari er ótrúlega skemmtilegur strákur og ég skemmti mér ótrúlega vel! til hamingju elsku ari minn!

sigurjón kári þorgeirsson

Posted in börn, fjölskylda, ljósmyndun on May 17th, 2010 by hilda – 2 Comments

það var yndislegt að fá að vera viðstödd skírn þessa unga manns og sonar kórsystur minnar í hallgrímskirkju. hann hlaut afar fallegt nafn og var athöfnin hin yndislegasta í alla staði. innilegar hamingjuóskir, kæra fjölskylda!

afmæliskökubakstur

Posted in ljósmyndun on March 23rd, 2010 by hilda – 2 Comments

auður bakar afmælisköku handa pabba sínum..

Posted in fjölskylda, ljósmyndun on March 22nd, 2010 by hilda – 1 Comment

elsku björn, til hamingju með afmælið.

Posted in ljósmyndun on March 22nd, 2010 by hilda – 1 Comment

sumir dagar eru bara betri en aðrir. og þessi dagur var góður.

Posted in börn, ljósmyndun on March 19th, 2010 by hilda – 1 Comment

við bjarni skruppum niður í dal að taka nokkrar myndir – enda er hann vanur að vera fyrir framan myndavélina.

ég trúi því varla að hann fermist um næstu helgi.

annars er ég enn að ná mér niður eftir stórkotlega tónleika með sinfoníuhljómsveit íslands í gærkvöldi, þarna rættist langþráður draumur um að standa á stóra sviðinu, og þvílík upplifun sem það var!

ævintýraferð í haustlitadýrð

Posted in ljósmyndun on October 24th, 2009 by hilda – 4 Comments
það er sko ekkert gaman að vera eðlilegur í framan þegar maður er tveggja ára

það er sko ekkert gaman að vera eðlilegur í framan þegar maður er tveggja ára

við auður héldum síðdegis á vit ævintýranna og fundum stað þar sem báðar gátu leikið sér.

það var sko gaman að sulla í tjörninni!
það var gaman að sulla í tjörninni!
auður skrifar með trjágrein

auður skrifar með trjágrein

í dag uppgötvaðist að hægt væri að skrifa með blautum trjágreinum. þetta var mikið gleðiefni.

á morgun er svo ferð í hallgrímskirkju og fleira skemmtilegt.

Posted in ljósmyndun on October 18th, 2009 by hilda – 1 Comment

um síðustu helgi var skírn þessa litla drengs, sem hlaut hið fallega nafn sigurður. það var yndislegt fyrir mig að fá að taka myndir af því tilefni, enda sérstaklega myndarlegt barn eins og sjá má! ég á enn eftir að klára þetta verkefni, en langaði til að sýna nokkrar af mínum uppáhalds!

Posted in ljósmyndun on September 26th, 2009 by hilda – Be the first to comment

ég var beðin um daginn að mynda þrjár yndislegar stúlkur úr hafnarfirðinum og við hittumst á sólríkum þriðjudagseftirmiðdegi í hellisgerði.

vinkonur

vinkonur

þetta var án efa með skemmtilegri myndatökum hingað til!